Eitt fordæmi er betra en þúsund ræður
Ástin í lífi mínu
16.05.2006 21:52:01 / tamunda

Regnið er að gráta alveg eins og ég.....

Tommi er búinn að vera hjá mér síðan á föstudag og áttum við yndislega helgi saman. Ég gat ekki hugsað mér að vera ein úti á afmælisdaginn sérstaklega þegar maður er komin á þann aldur þar sem maður er hættur að telja árin, dettur bara í það og vonar að árið hafi ekki náð manni....

Við sem búum á Kongens Tværvej 3 héldum grillveislu í tilefni dagsins þar sem Thelma greifi bauð upp á kjúkling og pylsur. Kvöldið var mjög fínt EÐA alveg þangað til kærasti vinkonu minnar kom með Ákavíti þar sem ég og hann tókum þrjú skot hvor. Ég held að ég þurfi ekki að segja hvernig kvöldið endaði  .... 

Annars var helgin mjög fín, við Tommi vorum að túristast í Köben allan mánudaginn svo fór ég með Tomma út á flugvöll í dag. Það rigndi í allan dag og ég var frekar leið eftir að ég kvaddi hann. Til að hressa mig við þá ákvað ég að nota aðferð sem virkar  alltaf: versla-nammi-Friends þættir....

Fór á Strikið keypti mér bikiní síðan heim, hámaði í mig nammi og horfði á 16 Friends þætti og viti menn ég er eins og nýslegin túkall  


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 16:16:27 / tamunda

Í fréttum er þetta helst:

Ég fór í mitt fyrsta munnlega próf í morgun í fagi sem heitir Lönd sem vörumerki og viti menn mín nældi sér í 10 í einkunn (íhaa fyrir mér). Aðeins til að skyggja á þessa hamingju þá er hæst gefið 13 hér, 12 er ekki til, næsta einkunn er 11 þannig að 10 hér jafngildir 9 heima. En þrátt fyrir það íhaaaaaaa

Það er búið að vera 15˚C í dag og samkvæmt spánni þá mun hitinn bara hækka en slæma við það er að með hækkandi sól eykst löngunin í bjór og að hanga á kaffihúsum í stað þess að hanga inni í loftlausu bókasafni og rembast við að troða fróðleik inn í hausinn á mér...

Ég fæ fylgd heim í júní.. Ingunn, Guðný og Elín ætla að sjá til þess að ég komi heim á tilsettum tíma þannig að þær eru búnar að kaupa miða út til mín síðustu helgina mína hér. Það er skömm að segja frá því en ég er búin að vera hér síðan í janúar og hef aldrei kíkt út á lífið. EN þar sem skutlurnar eru að koma þarf ég að kynna mér staðina áður svo það líti ekki út fyrir það að ég hafi bara verið að læra í allan vetur.

Sjáumst


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 15:51:00 / tamunda

Eitt próf búið

Jæja fréttir af mér....

 

Ég var að klára tvo fyrirlestra sem ég hélt og eitt lokapróf í þessari viku og ég er er enn á lífi..... íhaa fyrir því

Fyndið hvað manni líður alltaf eins og þetta sé óstíganlegt en svo þegar það er liðið þá lítur maður yfir vikuna og hugsar með sér... vá hvað þetta er gaman......

Eftir að hafa hitt nokkra sem voru með mér í prófinu þá komust við að þeirri niðurstöðu að þetta var bara frekar erfitt próf miðað við það að það átti að vera frekar auðvelt...

Síðasta nótt var erfið.. það var partý í eldhúsinu á hæðinni minni í alla nótt þannig að ég fékk lítinn svefn. Ég ákvað að athuga stemmninguna klukkan 3 í nótt og þá var einn með hausinn ofan í klósettskálinni og hinir að horfa á hann og hvetja. Svo í morgun þegar ég ætlaði að fá mér morgunmat þá var mjólkin úldin og ekkert að borða nema instant kaffi jammí jamm.

En nú er eitt próf búið og er að fara til London í kvöld svo til Íslands á sunnudaginn og verð til 18. apríl


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 23:14:38 / tamunda

Sumu fólki er bara ekki hægt að breyta

Ég hef verið þekkt fyrir það að framkvæma áður en ég hugsa, síðasta föstudag fór ég ásamt nokkrum skiptinemum í háskólabæinn Lund í Svíþjóð. Ég sá útikamar sem leit út fyrir það að vera svona lúxus kamar því hann var klæddur marmara steini. Bara til að fá staðfestingu á því að þetta væri marmari þá áður en ég vissi af sparkaði ég í karmarinn. Nema hvað þetta var ekki marmari heldur létt stál sem marraði vel í eftir sparkið.

Vandamálið var að það var einhver inni á kamrinum sem hefur örugglega brugðið við sparkið og í staðinn fyrir að játa mig sigraða og biðjast afsökunar þá datt mér ekkert annað í hug en að segja ,,tight it up buddy I need to pee”

Ég hlýt að vera strengjabrúða einhvers því stundum hef ég alls enga stjórn á mér.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 19:15:39 / tamunda

Tvö góðverk og eitt ekki svo gott

Ég byrjaði á því að kaupa blað sem heimilislaust fólk er að selja á götunni og borgaði 200 ISK fyrir. Eftir það fór ég í sund og þegar ég var að koma upp úr lauginni og var að klæða mig sá ég konu (misþroska) sem var að gráta því hún gat ekki læst skápnum sínum fyrir fötin sín. Það vildi svo til að ég var að opna minn skáp og fékk peninginn tilbaka þannig að ég gaf henni peninginn minn 200 ISK og hjálpaði henni að læsa skápnum. Á þessum tímapunkti fann ég það í hjarta mínu að ég væri góð manneskja og mér leið vel.

Eða alveg þangað til að ég hjólaði áleiðis heim. Það var bíll lagður fyrir hjólabrautina og ég ætlaði aðeins að kanna aðstæður áður en ég mundi hægja á mér (ekki góð ákvörðun). Ég stóð upp og ætlaði að hjóla og rann af pedalanum og fóturinn flæktist undir hjólið og ég fékk stýrið í bringuna.

EN á meðan þetta gerðist var kona á besta aldri sem var næstum undir mér, en sem betur fer sá hún hvað var að gerast og náði að grípa í hjólið og í mig. Hefði hún verið nokkrum árum eldri hefði hún örugglega ekki náð að grípa mig og ég hefði hjólað yfir hana eða gefið henni hjartaáfall á öllum látunum í mér. Ég vil taka það fram að konan slasaðist ekki  var frekar bara brugðið.

Ég slasaðist heldur ekki nema kannski skaðaðist stoltið mitt lítillega, það er alveg ótrúlegt hvað áhorfendur geta gert mann vandræðalegan...

Ég er komin með skype nafnið mitt er tamunda


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 19:43:09 / tamunda

Klipping

Ég ákvað á föstudaginn að panta mér tíma í klippingu á svona stylish hárgreiðslustofu og verða svolítið villt og breyta til.

Eftir að hafa fengið mér smá í tánna fór ég í klippingu. Ég benti á klippingu í blaði þar sem kona var með nettan hanakamb og hugsaði með mér að svona klipping gæti ekki klúðrast, svolítið töff en samt þannig að snyrtimennskan er í fyrirrúmi. Ég er sem sagt komin með hanakamb og það versta er að allar krullurnar eru farnar úr og hárið á mér hefur breyst aftur í englahár þar sem öll efni renna úr hárinu á mér. Ég setti í morgun froðu, fitu og hársprey í hárið á mér og það er eins og ég hafi verið að þvo á mér hárið með hárnæringu því það er svo flatt nema smá hluti af toppnum sem vill bara vera uppi þannig að í stað þess að fá stylish klippingu fékk mín sér bara topp eins og Tinni er með.     

Why fix it if it ain’t broken........Það er ástæða fyrir því af hverju sumir eru íhaldsamir og mun ég halda mig við þá stefnu í framtíðinni...


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 22:05:00 / tamunda

Mojen

Ad lida eins og eg se buin ad pissa a mig er tilfinning sem eg er buin ad fa oft thessa vikuna. Brettid a afturdekkinu a hjolinu minu er of stutt thannig ad eg geng um skolann med blauta rond a rassinum og i vel blautum naerbuxum thegar rignir.

Eg dey aldrei radalaus thannig ad eg klippti gat a plastpoka og reyndi ad troda mer i hann eins og bleiu. Eg man eftir thvi ad hafa gert thetta thegar eg var yngri og notadi sem thoturass en mer tokst ad rifa pokann utan af mer adur en eg nadi ad setjast a hjolid. Hef greinilega eitthvad staekkad fra thvi eg var 8 ara...

Eg sa ljosid i dag a klosettinu upp i skola... klosettin eru ekki i standard haed thau eru miklu laegri. Einu klosettin eru fyrir baedi kynin sem var mikid afall fyrir skiptinemana  ad thurfa ad deila theim med hinu kyninu. Thetta er gert svo ad karlmennirnir sitji medan their letta af ser..   Eg bara spyr hvada snilli fann thetta upp ...


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 16:48:31 / tamunda

koben

Nu er eg komin med hjolid mitt i lag. For med hjolid i hjolabud til ad stilla og setja flotta korfu a thad. Er ordin frekar aum i bakhlutanum thvi eg fer nuna allar minar ferdir a hjolinu. Mer er sagt ad allar danskar stelpur seu med flottan rass.. hver veit hvad hjolid gerir vid minn ......

Skolalifid a vel vid mig herna og helgarnar reyndar lika. Eg og Domhildur forum a Strikid i gaer i hadeginu og byrjudum a veitingastad sem heitir RizRaz og er graenmetisstadur. Eftir tvo hvitvinsglos var forinni heitid a Strikid ad versla, nadi ad kaupa afmaelisgjof handa Tomma minum. Eftir ad hafa verid thar i nokkra klst forum vid heim til Domhildar ad elda og audvitad drekka adeins meira hvitvin.

Eg for heim a hjolinu minu med pokana, sma kennd og ekkert ljos ne endurskinsmerki. Eg maeli ekki med thessari hegdun thvi eg var heppin, eg hefdi getad fengid sekt upp a 5000 isk fyrir ad vera ljoslaus einnig misst flotta hjolid hefdi loggan stoppad mig thvi eg var bara sma kennd. Thannig ad eg er buin ad akveda thad ad fa mer ljos a hjolid fyrir naestu verslunarferd for sure..

En annars hefur helgin farid vel i okkur herna a Kongens Tvaervej. Strakurinn sem er med herbergi fyrir ofan mig vard "heppinn" i gaer thannig ad eg vard ekki eins "heppin" og hann thvi eg svaf litid ut af honum og hans naeturgesti. Su sem eg deili med badherbergi var heldur ekki eins heppin thvi hun eyddi storum hluta af nottinni ofan i klosettskalinni. En helgin er ekki buin enn hver veit hvad gerist i kvold.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 11:19:03 / tamunda

Sunnudagar i Koben

Dagurinn i gær var frekar skrytinn. Eg ætladi aldrei ad koma mer ur ruminu var bara ad lesa og hanga til kl 14 tha loksins hringdi eg i Domhildi og vid forum a Strikid i sma gongutur. Kom aftur a herbergid um 6 leytid.

Eg er sjonvarpslaus (ekkert tv i husinu), med enga tolvu, og atti enga bok sem eg var ekki buin ad lesa i 15 fermetra herbergi og Ipodinn minn vard batterislaus i gær. Eg sat og horfdi ut i loftid og hugsadi med mer ad thetta væri stundin til ad fara ad grenja.

En eg gerdi thad ekki thvi thad er svo hljodbært i husinu ad tha mundu allir a hædinni heyra i mer og eg var ekki alveg i studi fyrir thad serstaklega i ljosi thess ad eg er lang elst i husinu.

Eg ætla ad bæta ur thessu og kaupa mer fartolvu og vonandi fæ eg hana i dag thvi eg ætladi ad kaupa Dell tolvu og ef eg geri thad tha fæ eg hana ekki fyrr en eftir 7 til 10 virka daga. ONEI takk fyrir eg ætla ad finna einhverja i dag og taka hana med mer heim I DAG.

Ja medan eg man eg er komin med ny simanumer eg læt thau a netid um leid og eg finn ut ur thvi hvad er numerid.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 14:53:25 / tamunda

Aldurinn ad faerast yfir mann

Jaeja nu er eg komin med herbergi thar sem eg deili ollu nema herberginu minu. Thetta er mjog snyrtilegt og lika gott thegar madur hefur kynnst einhverju verra thvi tha verdur madur svo sattur med litid.

Her by eg nuna

http://www.cbs.dk/cbs_international/accommodation/exchange_students/menu/residence_halls/residence_halls_kongens_tv_rvej

Eg er i fyrsta skiptid nuna ad finna fyrir aldrinum. Eg er su eina sem drekkur kaffi a haedinni minni thvi thau eru oll rett rumlega tvitug. Thetta eru bara litlir hvolpar og eiginlega vaeri eg meira til ad thau vaeru hvolpar thvi tha gaeti eg leikid mer med tha og haldid a theim og dullast med tha thegar mer leidist.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 00:33:50 / tamunda

HJÁLP Ég er komin í fangelsi í þriðjaheims ríki

Nú er ég alveg búin að sanna það að ég læt vaða yfir mig og er fljót að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt. Ég fékk að sjá holuna sem ég á að gista í og hugsaði með mér ok hér er verkefni fyrir mig og Mr. Clean.

Ég er búin að vera að þrífa í allan dag og þangað til frændi minn kom í heimsókn og sá höllina eftir það var ákveðið að ganga í það að rifta samningnum við þennan Íraka sem á íbúðina.

Endilega kíkið á linkinn Hér er íbúðin sem ég er búin að gera leigusamning næstu 5 mánuði.

http://www.viskan.net/thelma/

Eftir þessa reynslu mína get ég sagt með mikillri vissu að þetta getur ekki versnað og það góða við það að þegar botninum er náð þá er bara ein leið út og hún er upp.....


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 18:51:32 / tamunda

Bónusferð

Amma mín er búin að vera slöpp í nokkra daga og ég hringdi í hana og bauð henni að fara í búðina fyrir hana.

 

Ég skrifa niður hvað hún vildi sem var þetta týpíska, mjólk, smjör og ab-mjólk og í lokin skrifaði ég niður „buxnahlífar“ ég ákvað að vera ekkert að spyrja hvað það væri því hún tók strax fram að þetta væri allt hægt að nálgast í Bónus.

Ég dreif mig á rauðu eldingunni minni (bílnum) í Bónus út á nesi og fann allt nema buxnahlífar. Mjög einbeitt ákvað ég að gefast ekki upp því þetta væri örugglega til í Holtagörðum, fór þangað og ég talaði við tvo karlmenn sem unnu þar og þeir könnuðust ekkert við þetta. Ég játaði mig sigraða og hélt heim til ömmu og lét hana vita að Bónus væri bara ekki með buxnahlífar, hún var ekki alveg að kaupa það en sagðist redda því sjálf.

 

Í dag heyrði ég í mömmu og við vorum að tala um ömmu og að ég hefði farið bæinn næstum á enda til að finna þessar buxnahlífar. Þá spurði mamma mig hissa af hverju það væri svona erfitt að finna dömubindi í Bónus....

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.12.2005 01:12:01 / tamunda

MIAMI

Nu erum  vid buin ad vera her a Miami i ruma viku og allt buid ad vera mjog notarlegt. Erum nuna i ibud sem vid fengum ad lani hja tengdo sem er vid South beach tekur okkur 10 min ad ganga a strondina. Erum buin ad vera i allan dag a strondinni og thad sest ekki a mer thvi eg var med solarvorn nr 25 og nr 60 svo eg mundi nu orugglega ekki brenna.

Thegar vid komum inn i landid tha tok madur a moti mer i tollinum sem hafdi misst thumalputtann, eg var svo ad einbeita mer ad thvi ad horfa ekki a puttann sem vantadi. Hann bad mig um ad setja vinstri visifingur a skannann og audvitad trod eg thumalputtanum a skannann og brosti vandraedanlega til hans thetta hjalpadi ekki  hann var engan veginn ad fila mig en hleypti mer samt inn i landid.

Timinn flygur herna, eg er eiginlega ekkert buin ad versla adallega vegna thess ad eg er i sma adhaldi og er ad fara ad flytja til Koben 17. jan eg aetla ad spara mig fyrir verslanirnar thar.

Eg var heppin i ar fekk mikid af godum gjofum fekk t.d. myndavel til ad setja a fartolvu og skype til ad geta talad i gegnum fartolvu thegar eg fer til Koben vid vini og vandamenn og lika minnislykil fyrir fartolvu thannig ad nu vantar mig bara fartolvuna og tha er eg tilbuin fyrir Koben ihhaaaa.

Jaeja verd ad haetta
I got to dash to a party

Gledileg jol allir og sjaumst hress a naesta ari


» 89 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 17:49:54 / tamunda

Uppbyggjandi síða

Ertu búin að eiga góðan dag? Viltu breyta því?

Kíkið á þessa síðu og komist að því hverjir hafa eytt þér út af msn lista sínum....

http://www.blockstatus.com/msn/delete-checker


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 12:11:10 / tamunda

Ástarpróf

Ég var að taka ástarpróf á netinu áðan...algjör snilld. Þið verðið að prófa! Það er linkur á það undir hitt og þetta hérna til hliðar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti